16apríl

Vor og sumar

(Skrifaði þetta blogg reyndar í gær, gleymdi að pósta því, en það skiptir litlu máli)

Ég mundi það skyndilega áðan hvað ég var farin að sakna ljósmyndunar. Ég var búin að gleyma því hversu gaman það getur verið að rölta út með myndavélina og skjóta útí loftið, reyna að ná ókunnugu fólki eða lauma einni og einni mynd í görðum ríka fólksins í Þingholtunum.



Já, Þingholtin. Ég fann sumarið, það hafði falið sig þar. Það var nóg af því í sænska sendiráðinu. Hvað eru þeir að einoka sumrið okkar?

Spring flowers 

Ég ákvað það að ef ég bý í Reykjavík í framtíðinni vil ég búa í Þingholtunum. Í stóru gömlu húsi með hálf-villtum garði og mosavöxnum steinvegg í kring, gömlum trjám og fúinni rólu í hálf-dauðu tré. Þar vil ég að mín börn alist upp, þ.e.a.s. ef þau geta ekki alist upp á Héraði. Ég verð auðvitað komin með doktor í efnafræði og búin að græða heilmikið á einhverri merkilegri uppgötvun. Gott plan?

Það var yndislegt að fara út og finna ekki-svo-kalda-goluna bera með sér grilllykt og graslykt, sjá börn úti að leika sér. Ég held barasta að vorið sé komið. Það má rigna og blása fyrir mér, en vorið er allavega komið!

Ég ætla bara að bæta við smá tilkynningu: Ég fékk vinnu í sumar og verð á Smylabjörgum, eins og síðasta sumar. Svo ég verð á Höfn, en samt ekki ... Ég ætla allavega að reyna að eyða sumrinu meira í að hitta fólk, kíkja austur og vestur og suður (því miður Norðurland, hef lítið að gera þangað), en að vinna eins og brjálæðingur eins og ég hef gert síðustu sumur :) Er strax farin að hugsa upp plön (eins mikið og maður getur planað í vaktavinnu á Íslandi) :D

 

- Sara Björk

16. apríl 2009 klukkan 18:34
Sara Björk
Almennt
2 athugasemdir
19mars

BEST í heimi

Af því ég er algjör tossi og mig langar ekki að fara að sofa, ætla ég að blogga smá ... Ég veit hvort sem er að ég blogga ekki nema ég eigi ekki að vera að sóa tímanum í það :P Já, meðan ég man ... Hitt bloggið mitt var alveg flott, en það gat enginn kommentað á það, svo helmingurinn af gamaninu var horfinn. Ég ætla þá bara að halda mig hérna.
 

Eins og margir sem þekkja mig vita kannski fór ég til Póllands um daginn. Það sem margir vita kannski ekki er hvað ég var að gera. Enda ekki skrítið, það er pínu flókið :)
 

Einhverntímann snemma á þessu ári sendi Ásta mér link á msn, www.best.eu.org. Við fengum víst e-mail um þetta fyrirbæri - BEST. Við skoðuðum þetta og komumst að því að þetta var eitthvað Evrópskt félag sem heldur námskeið og aðrar uppákomur um alla Evrópu, tengt nokkrum háskólum í stærstu borgunum. Þetta var bara spennandi svo ég sótti um kúrs og komst inn í kúrsinn "On the other side of the screen - Be creative in multimedia" í Varsjá í Póllandi.


Jæja, svo fer ég út og til að gera langa sögu stutta voru þetta örugglega 10 bestu dagar lífs míns. Ég skoðaði Varsjá, lærði um ljósmyndun og fleira, fór í fyrirtæki og gerði allskonar hluti á daginn. Á kvöldin fór ég í partý og allan þennan tíma var ég að kynnast ótrúlega skemmtilegu fólki. Þegar þessir 10 dagar voru búnir og ég fór á flugvöllinn til að fara heim til Íslands, þá einfaldlega grét ég. Ég hafði ekki sofið almennilega í marga daga, ég hafði borðað lítið allan tímann þarna úti og var alveg komin með nóg af partýum, en mig langaði minnst af öllu í heiminum að fara heim. Síðan er ég búin að vera að plana hvað ég geti gert næst, næstu BEST kúrsar, skiptinám, vinna í útlöndum, interrail ... 


Í dag var ég loksins búin að jafna mig á þessu öllu saman. Ég varð blaut í fæturna. Ég sat í efnagreiningar dæmatíma og braut heilann um það hvernig maður reiknar afoxunarmætti hlöðu og ég skildi það sem var að gerast. Ég sagði efnafræðibrandara með fólkinu og við tókum upp sketsa fyrir árshátíðarvídeóið. Allt í einu var ég komin inn í alvöru heiminn :) Og það er ekki sem verst :)


Ég held samt að ég taki mér pásu næsta haust. Það er kominn tími til. Ég fékk aldrei pásuna mína og ég vissi alveg að einhverntímann þyrfti ég á henni að halda. Ég vil ekki hætta á að brenna út í efnafræðinni þegar ég veit að mig langar helst að eyða ævinni í hana. Helst langar mig að fara í interrail um Evrópu, ég er alveg ástfangin af henni eftir að hafa kynnst fólkinu útí Póllandi (þ.e. fólki frá allri Evrópu, Pólland er samt æði líka). Vandamálið er bara að mig vantar einhvern með mér. Lítill aumingi eins og ég ætti ekki að ferðast ein :) Svo hérmeð auglýsi ég eftir ferðafélögum ...


Hvern langar í interrail um Evrópu með mér?


Annars veit ég ekki hvað ég geri, spurning hvort BEST hafi eitthvað skemmtilegt í boði :) 



- Sara Björk draumaferðalangur

19. mars 2009 klukkan 01:07
Sara Björk
4 athugasemdir
19febrúar

Nýtt blogg

Ég er orðin þreytt á þessu kerfi. Rakst á blogg sem er einhvernveginn tengt HÍ síðunni, allavega er þetta WorldPress blog sem er mjög flott og þægilegt :) Ætla allavega að prófa þetta ...


www.blog.hi.is/sbs21 
19. febrúar 2009 klukkan 10:56
Sara Björk
Almennt
1 athugasemd
15febrúar

Spólan

Ég er að hlusta á lagið Up Where We Belong spilað af The Royal Philharmonic Orchestra, lag af "Spólunni".

 

Spólan er kasetta sem við Urður hlustuðum alltaf á þegar við vorum litlar. Ég man ekki einu sinni eftir því, Spólan hefur bara alltaf verið til. Hún inniheldur lög af diski sem Fjölnir frændi minn á og heitir TV & Film Collection, flest frekar leim útgáfur af fallegum bíómyndalögum spilað af sinfóníum, ásamt hluta af Vor í Vaglaskógi (man ekki hver á það lag) og Kyrlátt kvöld með Bubba og langri þögn. Sem ég man að var vegna þess að við tókum óvart upp á spóluna í skóladagheimilinu sem vorum á :P

 

Þessi lög, sama hversu léleg þau eru, hafa alltaf verið aðal nostalgíulögin mín og ég elska að hlusta á þau. Sérstaklega þar sem Spólan fannst ekki í mörg ár og við höfum nýlega endurheimt þessi lög, af upphaflega disknum sem Fjölnir átti ennþá. Í seinni tíð hefur Up Where We Belong verið í uppáhaldi hjá mér af þessum lögum. 

 

Ég man mjög skýrt eftir því fyrir frekar mörgum árum og Spólan dúkkaði upp einhversstaðar heima. Ég var einmitt að hlusta á Up Where We Belong og ég sagði við annað hvort mömmu eða pabba eitthvað á þá leið: "Einhverntímann langar mig að spila í svona stórri sinfóníu".

 

Ég hef kannski ekki spilað með The Royal Philharmonic Orchestra, ekki einu sinni Sinfóníuhljómsveit Íslands. En ég spilaði með LÆ og ég er að spila með Svaninum og það er alveg nógu nálægt draumnum mínum.

 

Þegar ég rifjaði upp þessar minningar mundi ég hvað ég elska að spila í lúðrasveit, sama þótt það sé bara hobbý. Það er besta hobbý í heimi :)

15. febrúar 2009 klukkan 18:03
Sara Björk
Almennt
2 athugasemdir
02febrúar

Evrópa

Oh, Europe Map er drasl á leikjasíðunni ...... Nánar
02. febrúar 2009 klukkan 12:24
Sara Björk
Almennt
2 athugasemdir
31janúar

Spjong!

Það er klukka í Letigarði sem er eiginlega alveg merkileg. Alltaf á klukkutíma fresti, kl. 14 mín í (-16 sek) kemur úr henni stórt "SPJONG".

 

Við hlustum stundum sérstaklega eftir spjonginu þegar við sitjum þarna og bíðum eftir næsta tíma, eða lærum heima. Ásta Karen hefur hinsvegar aldrei heyrt þetta hljóð og í gær, eftir langan verklegan tíma, ákvað hún að bíða aðeins í Letigarði eftir að klukkan yrði 14 mín. í 2. Hún beið lengi, og allir þögnuðu, en ekkert hljóð heyrðist. Helvítis klukkan ákvað að sleppa spjonginu einmitt í þetta skipti.

 

Svo Ásta Karen hefur aldrei fengið að heyra spjongið.

 

---

 

Í gær bókaði ég flug til Póllands (Keflavík-Kaupmannahöfn-Varsjá). Fékk reyndar ekki kannski ódýrasta flugið, en það var allavega á viðráðanlegu verði og ég þarf ekki að taka auka daga bara í að ferðast. Ég komst að því að ég lendi á Frederic Chopin flugvellinum í Varsjá, sem mér finnst pínu kúl :)

 

Svo er það bara að bíða eftir að daguinn renni upp. Ég hlakka ekkert smá til! Jafnvel þótt ég þurfi að missa af þremur verklegum tímum, sem þýðir a.m.k. einn tvöfaldur föstudagur (verklegt frá 8:20 til 17:20). Þetta er bara svo spennandi!

 

Það sem ég er að fara að gera úti er semsagt að læra um tæknina bakvið multimedia, eins og hvernig video og tónlist virkar í tölvum, ef ég skil þetta rétt. Ég er allavega að fara að læra um eitthvað spennandi. Svo er ég að fara að hitta fullt af fólki og gera ýmislegt skemmtilegt sem er búið að plana fyrir okkur :)

31. janúar 2009 klukkan 14:15
Sara Björk
Almennt
3 athugasemdir
16janúar

Warszawa!

Ég sagði í síðasta bloggi að ég væri að bíða eftir svari frá BEST, félagi sem heldur kúrsa um alla Evrópu.

Ég er búin að fá svar. Ég komst inn í kúrs sem er í Varsjá í Póllandi og kallast "Be creative in multimedia". Hann fjallar semsagt um tæknilegu hliðina bakvið media. Mjög spennandi! Kúrsinn er rúmlega vika, frá 27. febrúar til 8 mars og ég er ákveðin að fara.

Ég hlakka svo til! Loksins fæ ég að gera eitthvað svona spennandi :) 


Svo var ég í ágætum verklegum tíma í efnagreiningu í morgun og engu öðru, svo ég er bara í súper góðu skapi í dag :D Elska svona daga :D


- Sara Björk
16. janúar 2009 klukkan 14:02
Sara Björk
Almennt
3 athugasemdir
12janúar

Blablabla

Útdráttur:

Blablabla blablabla nýársheit blablabla skóli blablabla


Fyrir jól sótti ég um að fara í stuttan kúrs í öðrum Evrópulöndum í gegnum fyrirbæri sem heitir BEST (Board of European Technology Students) og 15. jan fæ ég svar um það hvort ég komst inn í eitthvað! Það sem ég sótti um voru námskeið í Varsjá (Póllandi), Bordeaux (Frakklandi) og Belgrad (Serbíu). Er ekkert smá spennt að fá svar!

Svo er ég líka að bíða eftir helginni 23.-25. janúar en þá fer ég í skíðaferð+vísindaferð til Akureyrar með efnafræðinemum og öðrum raungreina- og verkfræðinemum. Það verður stuð :) Líka ágætt að blanda geði við aðra en bara efna- og lífefnafræðinema, það er fínt að fá fjölbreytni (alveg fólk sem er í öðrum raungreinum!)


Blablabla

Fyrir þá sem nenna ekki að lesa bull er þetta stytt útgágfa af blogginu sem ég skrifaði, en þið megið alveg ýta á meria :)
(skemmtilegt að geta gert svona útdrátt :P)... Nánar
12. janúar 2009 klukkan 22:03
Sara Björk
Almennt
6 athugasemdir
14desember

Próf

Ég er að fara í efnafræðipróf á þriðjudaginn.

Er að læra. Gengur svo vel, eins og þið sjáið :) Það er bara svo pirrandi tilhugsun að krakkarnir fyrir austan séu búin í prófum og komin heim í jólafrí, meðan ég er rétt að byrja. Helga er líka búin ... Mér líður eins og ég sé eina sem sit bara og læri :/ Nema auðvitað hin sem eru í efnafræði/lífefnafræði :)

Ég eyddi reyndar mikilvægum próflestrartíma í gær í að fara út og spila jólalög með Svaninum. Það var svooo kalt en líka svo gaman :D Kom mér alveg í jólaskap að spila nokkur illa heppnuð jólalög með forsna putta og tær :) Svo fengum við kakó og köku og bara jólastemminguna beint í æð. Enda líka frábær stemming í hópnum, bara gaman þegar við klúðruðum endinum á lögunum :) 

Svo er það bara aðal jólastemmingin um næstu helgi, karlakórstónleikarnir á Höfn. Get ekki beðið eftir að spila! Sérstaklega þegar við tökum síðasta erindið í Heims um ból. Þá koma sko jólin :)
Og fyrir þá sem fatta þetta ekki, þá eru þessir tónleikar hefð á Höfn, þar sem allir kórar og lúðrasveitir koma saman og spila og kirkjan fyllist af fólki í jólaskapi. Yndislegir tónleikar :) Líka margar góðar minningar tengdar þessu, að sitja á bakvið með hljóðfærin og hafa pínulítið of hátt :) Mmmmmm ....

Ég hlakka svooo til að koma heim! :)


Er með einn jólaprófabrandara hérna í lokin

Q: What does a teary-eyed, joyful Santa say about chemistry? 
A: HOH, HOH, HOH!  


Sara Björk jólasveinn


5 dagar þangað til ég kem heim
7 dagar í jólatónleikana
10 dagar í jólin
17 dagar eftir af árinu 
14. desember 2008 klukkan 15:59
Sara Björk
Almennt
6 athugasemdir
08desember

dSara/dx = -2

Þetta er eiginlega alveg hræðilegt ...

 

Ég er að fara í fyrsta prófið mitt á miðvikudaginn, ólíkt flestum öðrum er ég ekki búin að fara í neitt próf fyrir 10. desember. Vegna þess að allir aðrir eru að læra fyrir próf fannst mér kominn tími til að læra líka, er samt búin að taka því mjög rólega í prófalestrinum og ætlaði að geyma mestallt fram á síðustu dagana.

 

Svo núna, tveimur dögum fyrir próf, hef ég ekkert að gera!

 

Ég ætlaði að taka daginn í að skilja allt um fleiri breytistærðir og læra aðeins meira um diffurjöfnur og jafnvel fylki. En nei, fleiri breytistærðir kaflinn er bara fáránlega auðveldur, ég er búin að læra allt um fylki (sem eru álíka erfið og vigrar, nema við erum ekki að gera neina flókna útreikninga með þeim) og diffurjöfnurnar eru ekki einu sinni jafn flóknar og það sem ég lærði í menntaskóla.

 

Allt sem ég hafði hugsað að ég þyrfti að skoða extra vel fyrir próf, því ég skildi það ekki í tímum (eða mætti ekki í tímana) er svo fáránlega auðvelt að ég skil ekki hvernig kennarinn fór að því að rugla því svona uppá töflu.

 

Niðurstaðan er - Fyrsta árs háskólastærðfræði er leiðinleg 

 

 

Hvað á ég þá að gera af mér? Ég get kannski bara farið að versla fyrir jólin eða eitthvað ...

 

 

Næsta próf er efnafræði. Það er ekki fyrr en þriðjudaginn í næstu viku. Svo ég hef heila 5 daga (plús eftir stærðfræðiprófið) til að læra fyrir það. Og ég sé ekki fram á að læra mikið meira en í stærðfræði, svo ég hef heldur ekkert að gera þá.

 

 

Ég vildi bara að ég gæti verið á Egilsstöðum núna. Mér var tilkynnt það áðan að mín væri sárt saknað í stærðfræði prófalestrinum fyrir austan. Jón Ingi bara að gefast upp og allt í vitleysu ... Þau þurfa bara að læra að standa á eigin fótum :) Ég hefði samt ekkert á móti því að sitja uppá sal og kenna þeim :P

 

 

- Sara stærðfræðinörd

08. desember 2008 klukkan 14:08
Sara Björk
5 athugasemdir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur